Farice, sem tengir Ísland við umheiminn með fjarskiptasæstrengjunum FARICE-1, DANICE og IRIS, hefur tekið í rekstur varaleið fjarskipta um gervihnetti fyrir útlandasambönd. Með varaleiðinni er verið að styrkja fjarskiptaöryggi Íslands með því að gera gervihnattasambönd aðgengileg fyrir samfélagslega mikilvæg fyrirtæki og stofnanir. Tilgangurinn er að tryggja lágmarksnetsamband við útlönd ef til þess kæmi að fjarskiptasamband um alla sæstrengi við Ísland er rofið.

Þessi nýja þjónusta, Varaleiðin, er útlanda internetgátt sem notar eingöngu gervihnetti og hefur Farice þróað hana undanfarin misseri. Hún er boðin í heildsölu til fjarskiptafyrirtækja og internetþjónustuaðila til endursölu. Markmiðið er að kerfislega mikilvægir aðilar skrái sig fyrir þjónustunni hjá sínu fjarskiptafyrirtæki eða internet þjónustuaðila. Farice mun virkja leiðina í samstarfi við fjarskiptafyrirtækin. Varaleiðin er ekki hugsuð fyrir almenna internetumferð heimila heldur fyrir mikilvæga innviði, stofnanir og fyrirtæki.

Varaleiðin byggir á samnýtingu dreifðra móttökustaða auk fjölbreyttra gervihnattasambanda til þess að auka öryggi. Leiðin er hönnuð til þess að virkjast sjálfkrafa við heildarútfall fjarskiptasambanda um sæstrengina án aðkomu tæknimanna.

 

Örn Orrason, sölu- og þróunarstjóri Farice:

„Ísland getur ekki verið ótengt og ákveðnar sviðsmyndir hafa sýnt fram á mikilvægi þess að koma á varasambandi með gervihnöttum til að tryggja fjarskiptasamband fyrir allra nauðsynlegustu grunnþjónustu. Þjónustan er hönnuð þannig að gervihnattaleiðin virkjast sjálfkrafa fyrir skráða viðskiptavini missi landið alfarið samband um sæstrengi af einhverjum ástæðum.

Í grunnþjónustunni eru í upphafi tvö gervihnattafyrirtæki nýtt til að auka öryggið. Við virkjun er stýring umferðar gerð miðlæg og getur kerfið forgangsraðað notkuninni þannig að mikilvæg fjarskiptaumferð fái forgang. Ekki er þörf á að setja upp sérstakan búnað hjá viðskiptavinum heldur nýtist almenna internet tenging viðkomandi fyrirtækis.

Fyrstu viðskiptavinir geta tengst fljótlega og við teljum mikilvægt að allir kerfislega mikilvægir aðilar á Íslandi skrái sig fyrir þjónustunni. Þeir eiga að geta skráð sig fyrir þjónustunni hjá viðkomandi þjónustuaðila en við gerum ráð fyrir að flestir þjónustuaðilar endurselji þjónustuna. Við munum síðan með reynslunni þróa og styrkja þjónustuna enn frekar í samráði við hagsmunaaðila.“

 

Farice tengir Ísland við umheiminn með rekstri þriggja sæstrengja þar sem mikil áhersla er lögð á öryggi og er kerfið hannað til að þola áföll. Öryggi kerfisins felst í þremur fjarskiptasæstrengjum sem lenda á mismunandi stöðum um landið og eru tengdir fjölda ljósleiðara á landi á Íslandi og erlendis. Með rekstri varaleiðar um gervihnetti er fjarskiptaöryggi Íslands styrkt enn frekar.

 

Nánari upplýsingar veitir:

Þorvarður Sveinsson, framkvæmdastjóri Farice

+354 669 9222 – [email protected]